Urriðaveiði
Hafa sambandLitlá og Skjálftavatn í Kelduhverfi
Litlaá og Skjálftavatn eru staðsett í hjarta Kelduhverfis á norðausturlandi, þar sem ósnortin náttúra og ríkulegur fiskistofn sameinast í einstaka veiðiupplifun. Svæðið státar af glæsilegum bleikjum, urriðum og öflugum sjóbirtingum, þar sem hreinleiki vatnsins og fjölbreytileiki aðstæðna gefa hverjum veiðimanni tækifæri á ævintýri lífs síns. Veiðitíminn spannar frá 1. apríl til 10. október, með breytilegum veiðiaðstæðum eftir árstíðum.
Veiðisvæði
Veiðimenn sjá sjálfir um að skipta svæðinu sín á milli.
Veiðireglur
- 7 stangir, í þriggja daga hollum.
- Veiðitímabil frá 1. Apríl – 10. Október:
- 7–13 og 16–22 til 14. ágúst
- 7–13 og 15–21 eftir 15. ágúst
- Eingöngu fluguveiði með flugustöng
- Sleppa skal öllum fiski
Veiðihús
Gistiaðstaða fylgir ekki með við kaup á veiðileyfi. Hins vegar er boðið upp á gistingu í nærliggjandi stöðum eins og Keldunesi, Garði og á Hótel Skúlagarði.
Veiðitímabil
Veiðitímabil hefst 1. Apríl og því líkur 10. október
Annað
Skráning í veiðibók fer fram í AnglingIQ-appinu:
Aðgengi að Litluá og Skjálftavatni er afar gott og hægt að komast nánast að öllum helstu veiðistöðum með bíl.
Skilmálar
Umgangur og akstur
Veiðimenn skulu alltaf loka öllum hliðum á eftir sér. Óheimilt er að aka utan vegslóða eða inn á tún, engjar eða viðkvæm svæði nema með skriflegu leyfi landeiganda. Allur akstur skal fara varlega, og virða þarf merkingar, gönguleiðir og búfé.
Veiðireglur og ábyrgð veiðimanns
Einungis fluga er leyfð. Öllum fiski skal sleppt varlega aftur í ána (100% catch and release). Veiðimenn bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér veiðisvæðið, reglur og mörk svæðisins áður en veiði hefst. Notkun á ermum, netum eða öðrum ólöglegum veiðitækjum er stranglega bönnuð.
Umgengni við veiðihús og aðstöðu
Veiðihúsið og aðstaða skulu skilin eftir snyrtileg og í sama ástandi og þau voru afhent. Allt rusl skal tekið með sér eða sett í tilheyrandi ílát. Veiðimenn bera ábyrgð á skemmdum sem verða af þeirra völdum á húsi, búnaði eða landareign.
Öryggi
Veiðimenn skulu gæta öryggis við allar aðstæður og bera ábyrgð á eigin hegðun á svæðinu. Börn og unglingar mega veiða aðeins í fylgd fullorðinna.
Bókanir, greiðslur og endurgreiðslur
Veiðileyfi eru ekki endurgreidd nema ef veiði fellur niður af hálfu seljanda (t.d. vegna lokunar svæðis). Veiðileyfi er bundið á tilgreindan dag og er ekki hægt að færa milli daga nema með samþykki seljanda. Veiðimenn bera ábyrgð á að mæta á réttum tíma og á rétt svæði.
Veiðibók og skráning aflans
Skylt er að skrá allan afla og allar sleppingar í Angling IQ kerfisins áður en veiðidegi lýkur.
Ábyrgð og tjón
Seljandi ber enga ábyrgð á slysum sem kunna að verða á veiðisvæðinu. Veiðimenn veiða á eigin ábyrgð og skulu tryggja að þeir séu með réttan búnað fyrir aðstæður. Ábyrgð á tjóni á bílum, búnaði eða persónulegum munum er alfarið hjá veiðimanni.
Veiðiaðstæður eru alfarið háðar veðri, vatnsstöðu, hitastigi, rennsli og öðrum þáttum sem seljandi hefur enga stjórn á. Seljandi ber því enga ábyrgð á veðri eða náttúrulegum aðstæðum, þar á meðal þegar vatn er ófært, of lágt, of hátt, eða þegar veiði reynist erfið eða ómöguleg.Kaupendur eru upplýstir um að með kaupum á veiðileyfi sé verið að kaupa aðgang að veiðisvæði, ekki tryggingu fyrir veiði, aðstæðum eða afkomu fiska. Veður, vatnsstaða og náttúrulegar aðstæður
Endurgreiðslur og breytingar
Veiðileyfi eru ekki endurgreidd vegna óhagstæðra aðstæðna, veðurs, vatnshæðar, hitastigs, rigningar, þurrka, kulda eða annarra náttúrulegra þátta. Seljandi leitast ávallt við að vinna með veiðimönnum þegar einstakar aðstæður skapast, en slík aðstoð felur ekki í sér skyldu til endurgreiðslu, framlengingar, tilfærslu veiðidaga eða annarra úrræða.
Samþykki skilmála
Með kaupum á veiðileyfi staðfestir kaupandi að hann hafi kynnt sér og samþykkt alla skilmála og reglur sem gilda um viðkomandi veiðisvæði. Skilmálarnir eru bindandi fyrir kaupanda frá því augnabliki sem greiðsla fer fram.
Flugur sem við mælum með fyrir Litluá og Skjálftavatn

Púpur
- Pheasant tail #12 – 20
- Beykir #12 – 18
- Zebra Midge #16 – 22
- Blow Torch #12 – 16
- Krókurinn #12 – 16
- Squirmy Wormy #12
- Blóðormur #12 – 18
- Micro Mop #14
- Peacock #14 – 8

Þurrflugur
- Elkhair Caddis #14 – 10
- Griffiths Gnat #18 – 14
- Parachute Adams #18 – 14
- Klink Hammer #18 – 12
- Galdralöpp #14 – 10
- F-Fly #20 – 14
- Fat Albert #8 – 10
- Chubby Chernobyl #8 – 10
- Black Gnat #12 – 18

Straumflugur
- Black ghost #10 – 6
- Rektor #10 – 6
- Dentist #10 – 6
- Grettir #10 – 6
- Gray Ghost # 10 – 6
- Nobbler (Hvítur/Svartur/gulur) #12 – 6
- Dýrbítur
- Litlir Gamechangerar/Sexdungeon/Circuspeanut

Votflugur
- Partridge and orange #14 – 18
- Soft hackle pheasant tail #12 – 18
- Hot spot spider #14 -18
- Soft Hackle Hares Ear #14 – 18
- Teal and Black #14 – 18
- Partridge and Yellow # 14 – 18
- Starling and Hearl #14 – 18

