Silungsveiði

Hafa samband

Vestmannsvatn í Reykjadal

Vestmannsvatn er þar sem Reykjadalur og Aðaldalur mætast, á milli Mývatns og Húsavíkur. Í vatninu er bæði urriði og bleikja og jafnvel stöku lax. Vestmannsvatn er hluti af hinu víðfeðma vatnakerfi Laxár í Aðaldal. Úr vatninu rennur Eyvindarlækur niður í Laxá og áfram til sjávar. Í vatnið fellur einnig Reykjadalsá.

Veiðisvæðið:

Leyfilegt er að veiða í öllu vatninu.

Veiðireglur:

Allt löglegt agn er leyft.

Sleppa þarf öllum laxi en leyfilegt er að hirða allan silung sem veiðist en eru veiðimenn þó beðnir um að sleppa stórum urriðum.

Veiðitímabilið er 1. janúar til 31.  desember.

Daglegur veiðitími er 06:00-24:00

Veiðihús:

Möguleiki er á að fá gistingu á Vestmannsvatn Guesthouse sjá nánar hér https://www.facebook.com/vestmannsvatnguesthouse/ 

Veiðitímabil:

Allt árið.

Skilmálar:

Veiðileyfi fást ekki endurgreidd. Kaupandi skuldbindur sig til að skrá alla veiði samviskusamlega í veiðibók á AnglingIQ

Hafa samband

Staðsetning