Silungsveiði

Hafa samband

Brunná í Öxafirði (Vorveiði)

Brunná í Öxafirði samanstendur í raun af þremur ám Gilsbakkaá, Tunguá og Smjörhólsá rennur ofan af Laufskálafjallgarði og svæðinu vestan hans. Tunguá og Smjörhólsá eiga upptök sín vestan og sunnan við Hafrafell, þær sameinast og mynda Smjörhólsárfossa. Vorveiði svæði Brunnár er um 10 km langt með um 26 merktum veiðistöðum. Svæðið er býsna vatnsmikið og nær frá Smjörhólsárfossi og allt niður til sjávar. Smjörhólsárfossinn er rétt ofan við bæinn Leifsstaði

Veiðisvæði

Veiðimenn sjá sjálfir um að skipta svæðinu sín á milli.

Veiðireglur

Seldar eru 2 stangir, hálfan dag í senn.

Veiðitími 7-13 og 16-22

Fluga eingöngu

Sleppa þarf öllum fiski aftur í ánna

Veiðihús

Veiðihúsið við Brunná  heitir Hvirfilvellir og fylgir það með hollum í vorveiðinni. Skildu þrif og uppábúið er í húsinu og kostar það 20.000 kr hverja dvöl.
Með góðu móti geta 6 til 8 manns gist í húsinu. Í húsinu eru 2 svefnherbergi. Í hverju herbergi fyrir sig er tvöfalt rúm, rúmgott svefnloft, salerni með sturtu og vaski, nútímalegt eldhús, borðstofa og stofa. Í eldhúsinu er að finna öll nútíma tæki til eldamennsku s.s. stóran ísskáp, frysti, örbylgjuofn, eldavél, bökunarofn, ristavél, kaffivél og hraðsuðuketil. Matardiskar, glös, bollar, hnífapör og eggjárn af ýmsum gerðum eru einnig til staðar.

Í húsinu er notalegur sófi, sófaborð, sjónvarp og geisladiskaspilari ásamt útvarpi. Á svefnloftinu eru tvö rúm. Sitt hvoru megin við rúmin eru 4 svefndýnur. Rúmgóður 120 fm. sólpallur er við húsið og er kjörið að nota hann til útiveru þegar vel viðrar. Jafnframt er stórt og öflugt gas grill að finna á sólpallinum sem og sólhúsgögn.

Frá Akureyri er ekið í austur í gegnum Húsavík, framhjá Ásbyrgi og yfir brúnna yfir Jökulsá á Fjöllum.  Það eru í 5,5 km að malarvegi sem merktur er Hafrafellstunga – skömmu eftir Víðilund.  Sá vegur er ekinn í um 1,5 km og þá beygt til hægri og svo aftur til hægri við fyrsta afleggjara – 200 metrum síðar ætti veiðhúsið að blasa við.

 

Veiðihús

Veiðitímabil hefst 1. apríl og því líkur 10. júní

 

Skilmálar

Veiðileyfi fást ekki endurgreidd. kaupandi skuldbindur sig til að skrá lla veiði samviskusamlega í þar til gerða veiðibók.

 

 

Myndir frá brunná

Myrarkvisl fishing lodge

Flugur sem við mælum með í Brunná

Púpur

 

  •  Pheasant tail #12 – 20
  • Beykir #12 – 18
  • Zebra Midge #16 – 22
  • Blow Torch #12 – 16
  • Krókurinn #12 – 16
  • Squirmy Wormy #12
  • Blóðormur #12 – 18
  • Micro Mop #14
  • Peacock #14 – 8

Þurrflugur

 

  • Elkhair Caddis #14 – 10
  • Griffiths Gnat #18 – 14
  • Parachute Adams #18 – 14
  • Klink Hammer #18 – 12
  • Galdralöpp #14 – 10
  • F-Fly #20 – 14
  • Fat Albert #8 – 10
  • Chubby Chernobyl #8 – 10
  • Black Gnat #12 – 18

Straumflugur

 

  • Black ghost #10 – 6
  • Rektor #10 – 6
  • Dentist #10 – 6
  • Grettir #10 – 6
  • Gray Ghost # 10 – 6
  • Nobbler (Hvítur/Svartur/gulur) #12 – 6
  • Dýrbítur
  • Litlir Gamechangerar/Sexdungeon/Circuspeanut

Votflugur

 

  • Partridge and orange #14 – 18
  • Soft hackle pheasant tail #12 – 18
  • Hot spot spider #14 -18
  • Soft Hackle Hares Ear #14 – 18
  • Teal and Black #14 – 18
  • Partridge and Yellow  # 14 – 18
  • Starling and Hearl #14 – 18

Hafa samband