Urriðaveiði
Hafa SambandLaxá í Aðaldal – Efra og Neðra Hraun
Hraun er urriðasvæði rétt neðan virkjunnar í Laxá í Aðaldal austan við ána á móti Staðartorfu. Mjög skemmtilegt fjölskyldusvæði með mikilli náttúrufegurð og hreint frábært þurrflugusvæði þegar veður leyfir.
Veiðisvæði
Veiðimenn sjá sjálfir um að skipta svæðinu sín á milli.
Veiðireglur
Seldar eru 2 stangir á hvoru svæði, hálfan dag í senn.
7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst 7-13 og 15-21.
Fluga eingöngu
Sleppa þarf öllum laxi en 2 fiska kvóti er á urriða á stöng á hálfum degi.
Veiðihús
Veiðimönnum er bent á gistingu í nærliggjandi gistihúsum, Þinghúsinu, sími 464 3695, Gistihúsinu Brekku, sími 899 4218 ef menn vilja hafa meiri þægindi.
Veiðitímabil
Veiðitímabil hefst 1. Maí og því líkur 20 September
Annað
Oft getur verið talsvert slýrek í ánni, sérstaklega síðsumars og þá verða steinar hálir og skyggni í vatninu slakt. Ástæða er til þess að biðja veiðimenn að fara varlega við slíkar aðstæður.
Skilmálar
Veiðileyfi fást ekki endurgreidd. Kaupandi skuldbindur sig til að skrá alla veiði samviskusamlega á Angling IQ
Flugur sem við mælum með á urriðasvæðunum í Laxá

Púpur
- Pheasant tail #12 – 20
- Beykir #12 – 18
- Zebra Midge #16 – 22
- Blow Torch #12 – 16
- Krókurinn #12 – 16
- Squirmy Wormy #12
- Blóðormur #12 – 18
- Micro Mop #14
- Peacock #14 – 8

Þurrflugur
- Elkhair Caddis #14 – 10
- Griffiths Gnat #18 – 14
- Parachute Adams #18 – 14
- Klink Hammer #18 – 12
- Galdralöpp #14 – 10
- F-Fly #20 – 14
- Fat Albert #8 – 10
- Chubby Chernobyl #8 – 10
- Black Gnat #12 – 18

Straumflugur
- Black ghost #10 – 6
- Rektor #10 – 6
- Dentist #10 – 6
- Grettir #10 – 6
- Gray Ghost # 10 – 6
- Nobbler (Hvítur/Svartur/gulur) #12 – 6
- Dýrbítur
- Litlir Gamechangerar/Sexdungeon/Circuspeanut

Votflugur
- Partridge and orange #14 – 18
- Soft hackle pheasant tail #12 – 18
- Hot spot spider #14 -18
- Soft Hackle Hares Ear #14 – 18
- Teal and Black #14 – 18
- Partridge and Yellow # 14 – 18
- Starling and Hearl #14 – 18


