Veiðitímabil
Hafa SambandVeiðitímabil eftir mánuðum
Hvenær er best að veiða í ám og vötnum?
Íslenska veiðisumarið nær yfir flest svæði frá apríl og fram í október, en tegundirnar raðast aðeins upp eftir árstíma. Hér er gróf yfirsýn yfir helstu mánuði fyrir árnar og tegundirnar:
-
Apríl–maí: Bleikja, urriði, sjóbirtingur
-
Júní: Bleikja, urriði, sjóbirtingur og fyrsti laxinn (frá um miðjum mánuði)
-
Júlí: Bleikja, urriði, sjóbirtingur og lax – þurrflugu og laxveiði fer vel af stað
-
Ágúst: Bleikja, urriði, sjóbirtingur og lax – sterkur lax- og stórlaxatími
-
September: Bleikja, urriði, sjóbirtingur og lax – haustveiði og fallegir litir
-
Október: Sjóbirtingur og urriði
Aðstæður ráða þó alltaf og reglur hvers svæðis.
Apríl–maí – vorveiði, stóru urriðarnir og fyrstu ferðirnar
Vorið markar upphaf veiðitímabils í flestum ám. Þá eru:
-
Stórir urriðar og bleikjur að taka við sér eftir veturinn
-
Sjóbirtingur og sjógenginn fiskur að nærast á leirum, ósum og í neðri hluta ánna
Dæmigerðar aðstæður á vorin:
-
Vatnshæð getur verið breytileg, stundum ís uppi á heiðum en spennandi veiði neðar.
-
Mest púpa og straumflugutímabil, en þurrflugur geta komið sterkar inn þegar hlýnar.
Gott vorveiði mynstur fyrir íslenskar ár:
-
Púpur og litlir straumflugur í djúpum hyljum og strengjum
-
Hitch/skated flugur þegar fiskurinn fer að sækja í yfirborðið
-
Í ósum og leirum (t.d. á sjóbirtings- og bleikjusvæðum eins og Lónsá og sambærilegum ám) geta fiskar farið að lóna á ósa svæði ánna á eftir marfló.
Júní – Frábær urriða veiði og bleikjuveiði, og fyrsti laxinn að mæta
Júní er mánuður nr. 1 fyrir marga þurrfluguveiðimenn.
-
Fyrstu stærri klakin koma í mörgum ám (mýflugur, mý, vorflugur o.fl.)
-
Urriði og bleikja fara að taka meira á yfirborði
-
Um miðjan júní fara fyrstu stóru laxarnir að sjást
Algengt mynstur á ám eins og t.d. Laxá í Aðaldal, Mýrarkvísl, Reykjadalsá og Geitafellsá:
-
Þurrfluga, votflugur og púpur veiða rosalega vel
-
Stórir urriðar færast nær bökkum og leita í skugga
-
Laxinn finnst fyrst í neðri hluta ánna og í djúpum hyljum – oft best með Sunray míkró túpum og hitch
Júlí – Besti tími þurrflugu og aukandi laxveiði
Júlí er hápunktur sumarsins hjá flestum sem veiða:
-
Lengstu dagarnir, stöðugasta veðrið og mest líf í vatni
-
Laxgöngur komnar á fullt í mörgum ám
-
Þurrfluguveiði í hámarki í urriða- og bleikjuám
Dæmigert fyrir okkar svæði:
-
Mýrarkvísl, Reykjadalsá, Geitafellsá:
-
Þurrflugur, mýflugur, vorflugur, mý, maurar og yfirleitt mest megnis yfirborðsveiði
-
Fyrir lax: Hitch, litlar túpur og hefðbundnar laxaflugur
-
-
Laxá í Aðaldal aðrar og urriðár:
-
Stórir urriðar á þurrflugur og votflugur snemma á morgnana og seint á kvöldin
-
Um eða eftir 20. júlí er víða kominn bestu vikur laxveiðinnar sem stendur vel inn í september.
Ágúst – stöðug laxveiði og kraftmiklir haust fiskar
Í ágúst heldur veiðin áfram en breytist aðeins í eðli:
-
Laxarnir verða litmeiri og fyrirferðarmiklir í hyljum
-
Urriðinn getur orðið territorial – stórir fiskar taka þá oft laxaflugur
-
Bleikjan er víða farin að huga að hrygningu og dreifa sér
Á mörgum svæðum:
-
Skautandi hitch flugur og litlar laxaflugur skila frábærum árangri
-
Púpur halda áfram að gefa vel, sérstaklega í littlu vatni
-
Sjóbirtingur fer víða að sjást meira og dreifðari um árnar þegar fer að kólna aðeins og dimma á kvöldin
September – haustlitir, árásargjarn fiskur og síðustu dagarnir
September er einn skemmtilegasti mánuðurinn fyrir þá sem elska haust liti og veðrabreytingarnar:
-
Lax og sjóbirtingur litast og verða oft mjög árásargjarnir
-
Urriðinn sækir í orku fyrir veturinn og svarar vel straumflugum
-
Fyrstu haustrigningarnar hreinsa oft upp gróður og hressa upp á vatnsbúskap
Á urriða- og bleikjusvæðum:
-
Stærri straumflugur, leech-mynstur og skærar flugur geta verið frábærar
-
Púpu-veiði helst alltaf inni út tímabilið, sérstaklega í dýpri hyljum en það getur verið mikilvægt að hreifa fluguna
Október – seinasti séns fyrir sjóbirting og urriða
Það fer eftir reglum hvers svæðis, en þar sem opið er fram í október:
-
Sjóbirtingur er þá oft í toppstandi, nýgenginn eða í að byrja að para sig og undirbúa hrygningu
-
Urriðinn er oft mjög árásagjarn og viljugur til að taka flugu
Veiði er þá oft:
-
Þungar flugur, sökk taumur og sökk línur
-
Straumflugur og litlar púpur í litlu vatni
-
Veðrið breytilegt – kalt, en oft rosalega fallegt haust veður og kyrrð
Niðurstaða – hvenær ætti þú að bóka?
-
Viltu þurrflugu og urriða/bleikju?
– Besta tímabilið er júní–júlí, en einnig kemur ágúst vel til greina. -
Viltu blanda urriða og lax?
– Júní–september – og sérstaklega júlí–ágúst í mörgum ám. -
Viltu haustliti, sjóbirting og skýr ljósaskipti?
– September–október, þar sem opið er og reglur leyfa.
